Type of event: | Performance |
Start time: | 8:00pm |
Venue: | Félagar í Karlakór Reykjavíkur fagna vorinu með þrennum tónleikum í Langholtskirkju dagana 24. og 25 apríl kl. 20 og 27. apríl kl. 15. |
Description: | Félagar í Karlakór Reykjavíkur fagna vorinu með þrennum tónleikum í Langholtskirkju dagana 24. og 25 apríl kl. 20 og 27. apríl kl. 15. Einsöngvari með kórnum að þessu sinni er sópransöngkonan Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað, sem getið hefur sér gott orð á óperusviðinu og í tónleikasölum víða um Evrópu en um þessar mundir syngur hún í velheppnaðri uppfærslu Íslensku óperunnar á La Traviata eftir Giuseppi Verdi. Anna Guðný Guðmundsdóttir, sérlegur píanóleikari kórsins, verður við hljóðfærið auk þess sem hornaflokkur mun koma fram í tveimur lögum. Þá syngja nokkrir kórfélagar einsöng á tónleikunum. Eldri félagar Karlakórs Reykjavíkur verða sérstakir heiðursgestir og munu þeir flytja þrjú lög í upphafi tónleikanna. Friðrik S. Kristinsson stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur hefur alla tauma í hendi sér og tryggir sannan heildarhljóm sem engan svíkur. |